Tekið er við pöntunum í síma 450-9000 og í netfanginu fisherman@fisherman.is

Frábærar lausnir fyrir stóreldhús

Fisherman fiskréttir í gastro bökkum 
Fisherman býður upp á fjölda fiskrétta sem eru tilvaldir fyrir mötuneyti, fyrirtæki og stóreldhús, þar sem fiskurinn er afhentur ferskur í 5 kg gastro bökkum sem passa fullkomlega í hefðbundna gastro ofna. Það er bæði hægt að fá þorsk og ýsu í raspi og hefðbundinn plokkfisk sem eru fulleldaður og þarf því aðeins að hita.

Vinsælir heimsréttir, fullir af hágæða fisk í gómsætri marineringu
Þá bjóðum við einnig upp á fimm fjölbreytta og girnilega fiskirétti frá öllum heimshornum; portugalskan með léttsöltum þorski, argentískur með silungi, kóreskur með laxi, franskur með þorski og grískur með þorski. Vinsælu heimsréttirnir innihalda allir um 85% fisk sem gerir það að verkum að gastro bakkarnir eru fullir af hágæða ferskum fisk í bland við bragðgóðan kryddlög og grænmeti.

  

Nú þegar er fjöldi stóreldhúsa í viðskiptum við Fisherman sem nýta sér þessa auðveldu og þægilegu leið til að matreiða ofan í fjölda manns á fljótlegan og bragðgóðan hátt á hverjum degi.  Að jafnaði er nóg að panta fiskinn frá okkur fyrir hádegi og þá er hann kominn til þín um morguninn daginn eftir.

Pantaðu hér í netverslun Fisherman og við sjáum um að koma fiskinum til þín.  
Auðveldast er að panta fiskinn frá Fisherman í gegnum netverslun okkar og við sjáum um að keyra hann upp að dyrum hjá þér.  Einfaldaðu þér vinnuna í eldhúsinu með ferskum fiski frá Fisherman.

Skoða hér ferska fiskrétti fyrir stóreldhús 

Search