Viltu upplifa vestfirskt sjávarþorp frá fyrstu hendi og smakka á hágæða fiskmeti sem er framleitt á staðnum?
Sælkeraferð Fisherman er skemmtilegt, fróðleg og bragðgóð 60 mínútna gönguferð um vestfiskt sjávarþorp. Í ferðinni færð þú að kynnast sjávarþorpinu í fylgd með heimamanni, sem fræðir ykkur um það hvernig allt þorpið hverfist um fisk, fiskveiðar og vinnslu.
Gestir ferðarinnar fá meðal annars að heimsækja starfstöðvar Fisherman og smakka á því fjölbreytta fiskmeti sem er unnið hjá Fisherman.
Ferðin kostar 5.900 kr á mann en gangan er ókeypis fyrir 16 ára og yngri. Ferðin hefst á gestamóttöku Fisherman við Aðalgötu 15 á Suðureyri. Sælkeraferðin tekur eina klukkustund og innifalið í verði er leiðsögn, heimsóknir og fiskismakk.
Sælkeraferð Fisherman er í boði alla daga kl. 16:00, einnig er hægt að panta ferð fyrir hópa á öðrum tímum. Hægt er að bóka í ferðina með því að senda tölvupóst í netfangið: fisherman@fisherman.is
Njóttu þess að slaka á í faðmi fagra fjalla í nálægð við hafið í litlu sjávarþorpi á Vestfjörðum. Hótelið okkar er staðsett í hjarta þorpsins, þar sem er stutt í alla þjónustu og náttúran allt um kring.
Hótelið okkar býður upp á fjölda herbergja, allt frá eintaklingsherbergjum með sameiginlegu salerni upp í stór fjölskylduherbergi með sér baðherbergi.
Gestum hótelsins stendur til boða morgunverður að hætti Fisherman án endurgjalds auk þess sem að það er ókeypis þráðlaust net á öllu hótelinu. Á Hótelinu er einnig bistro og bar, þar sem gestir geta notið góðra veitinga og drykkja.
Gestamóttaka Fisherman er á Aðalgötu 15, 430 Suðureyri og síminn er (+354) 450 9000 eða (+354) 450 9006
Fisherman bistro er notalegur og fjölskylduvænn staður í hjarta Suðureyrar, sem er lítið en líflegt sjávarþorp á Vestfjörðum.
Á Fisherman bistro er boðið upp á ferskan og bragðgóðan fisk í bland við aðra ljúfenga rétti og svalandi drykki.
Opnunartímar sumarið 2023:
6. apríl - 17. maí: 15:00 - 23:00
18. maí - 31. ágúst: 8:00 - 23:00
1. sept. - 31. sept: 15:00 - 23:00
Á milli kl. 16:00 - 19:00 er gleðistund á barnum þar sem boðið er upp á 2 fyrir 1 af bjór á dælu og léttvínum.
Staðsetning: Aðalgata 15, 430 Suðureyri. Sími (+354) 450 9000 eða (+354) 450 9006