Tekið er við pöntunum í síma 450-9000 og í netfanginu fisherman@fisherman.is

Þorskur í tempura, 8 kg frosið

Fisherman þorskur í tempura hefur slegið í gegn hjá okkur, enda er þetta frábær leið til að matreiða djúpsteiktan fisk fyrir Fish & Chips á einfaldan hátt í ofni. 

Tempurabitarnir eru fordjúpsteiktir í eldhúsi Fisherman án þess þó að fiskurinn eldist, þannig tryggjum við stökkan hjúp og safaríkan fisk, eftir að þú ert búin að elda hann í ofninum hjá þér í 15-20 mínútur.

Þorskur í tempura er selt í 8kg kössum, sem hentar fullkomlega fyrir stóreldhús og mötuneyti.

Vörunúmer:  2144

Vörulýsingablað

Tekið er við pöntunum í síma 450-9000 og í netfanginu fisherman@fisherman.is


Línuveiddur íslenskur þorskur(69%), pilsner (vatn, maltað bygg, humlar, ger), tempurahveiti (hveiti, sterkja, lyftiefni (E500), litarefni (E101)), repjuolía, hveiti (hveiti, maltað hveiti), vatn, hvítlaukssalt (salt, hvítlaukur), svartur pipar.

Næringargildi í 100 g:
Orka:                          674 kJ / 161 kkal
Fita:                              5,3 g
Þar af mettuð:            0,5 g
Kolvetni:                        10,5 g
Þar af sykurtegundir:     0,1 g
Trefjar:                          0 g
Prótein:                         17,2 g
Salt:                             0,5 g

Ofnæmisvaldar skv. reglugerð EU nr. 1169/2011:

Þorskur, bygg, hveiti


Heimildir: Sýni ehf

Geymist í lokuðum umbúðum á hreinum og þurrum stað í frosti í 18 mánuði við -18°c.

 

Uppskrift að fiskur og franskar (e. Fish & Chips)

Best er að elda þorsk í tempura í ofni. 
Fiskurinn er settur frosinn inn í 200° heitan ofn í 15-20 mínútur. 
Til að fá enn stökkari hjúp er gott að setja ofninn á blástur. 


Við mælum með að elda franskarnar samhliða fisknum. Bara skella þeim í ofnskúffu fyrir neðan fiskinn og láta ofninn sjá um rest. 

Órjúfanlegur partur af hefðbundum Fish & Chips er svo auðvitað Fisherman  tartarsósa sem fullkomnar máltíðina ásamt sítrónu og grænum baunum, ef menn vilja bera fiskinn fram á breska vísu. 

Search