Tekið er við pöntunum í síma 450-9000 og í netfanginu fisherman@fisherman.is

Þorskur í tempura, 800gr (Frystivara)

Þorskur í tempura er í  handhægum 800gr pakkningum. Bitarnir eru lausfrystir og því er auðvelt að taka bara það magn sem þú þarft og setja beint inn í ofninn.

Við mælum með að setja tempurabitana frosna inn í ofn í 200° í 15-20 mínútur til að fá stökkan hjúp og safaríkan fisk. Þá er einfalt að elda franskarnar samhliða fiskinum í ofninum til að galdra fram Fish & Chips.

Einfalt, þægilegt og fljótlegt.

Aðeins er notaður umhverfisvænn línuveiddur þorskur í þessa vöru. 

Pakkning:     800gr
Vörunúmer:  M2305
Geymsluþol: 18 mánuðir við -18°c.

Vörulýsingablað

Tekið er við pöntunum í síma 450-9000 og í netfanginu fisherman@fisherman.is

 

Fisherman er fyrsta íslenska fyrirtækið sem selur fisk í neytendapakkningum til að fá bæði ASC og MSC umhverfisvottanir um sjálfbærni og samfélagslega ábyrgð. Þannig vill Fisherman vera leiðandi í umhverfisvænum valkostum þegar kemur að matvælaframleiðslu á Íslandi.

Það hefur verið langt og strangt ferli að landa þessum virtu umhverfisvottunum. Þær koma í kjölfarið á ítarlegum úttektum á okkar framleiðsluháttum og verklagi þar sem gæðakröfur við framleiðslu og virðing fyrir umhverfinu er höfð að leiðarljósi.

Villtur fiskur í sjó er takmörkuð auðlind en með sjálfbærum fiskveiðum og umhverfisvænu fiskeldi er hægt að mæta fólksfjölgun og nútímakröfum um hágæða matvæli með lágmarks vistspor.

Fisherman þarf að uppfylla fjölda skilyrða til að hljóta þessar virtustu umhverfisvottanir heims. Til að byrja með verslar Fisherman aðeins hráefni frá ASC vottuðu fiskeldi og MSC vottuðum fiskveiðum. Við getum ekki selt umhverfisvottaðar vörur nema að okkar samstarfsaðilar séu með vottun líka. Þannig þarf Fisherman að tryggja fullkominn rekjanleika á öllum sínum fiski, þannig að hægt sé að rekja hvern fisk frá hafi og beint á diskinn þinn!

Til að uppfylla kröfur ASC um notkun á eldisfiski:

- Skal fiskeldið ekki skaða umhverfi sitt.
- Skal fiskeldið takmarka notkun á lyfjum og skaðlegum efnum.
- Skal fiskeldið hafa dýravelferð í fyrirrúmi.

Til að uppfylla kröfur MSC um notkun á fiski frá fiskveiðum:

- Skal fiskurinn veiddur úr sterkum fiskistofnum.
- Skal fiskurinn veiddur á umhverfisvænan hátt.
- Skal fiskurinn veiddur samkvæmt sjálfbæru veiðistjórnunarkerfi.

Þess fyrir utan þarf Fisherman að sýna samfélagslega ábyrgð, til að mynda með því að tryggja starfsfólki sínu sanngjörn laun og öryggi á vinnustað.

Með því að versla umhverfisvottaðar vörur frá Fisherman getur þú verið viss um að vörurnar séu umhverfisvænar og unnar á sjálfbæran hátt með viðurkenndum vinnsluaðferðum þar sem allt er skráð og hægt að rekja hverja vöru aftur í uppruna sinn. Með því að velja umhverfisvænar og vottaðar vörur geta neytendur lagt sitt af mörkum og borðað bragðgóðan fisk með góðri samvisku.

 

Línuveiddur íslenskur þorskur (69%), pilsner (vatn, maltað bygg, humlar, ger), tempurahveiti (hveiti, sterkja, lyftiefni (E500), litarefni (E101)), repjuolía, hveiti (hveiti, maltað hveiti), vatn, hvítlaukssalt (salt, hvítlaukur), svartur pipar.

Næringargildi í 100 g:
Orka:                          674 kJ / 161 kkal
Fita:                              5,3 g
Þar af mettuð:            0,5 g
Kolvetni:                        10,5 g
Þar af sykurtegundir:     0,1 g
Trefjar:                          0 g
Prótein:                         17,2 g
Salt:                             0,5 g


Ofnæmisvaldar skv. reglugerð EU nr. 1169/2011: Þorskur, bygg, hveiti

Geymist í lokuðum umbúðum á hreinum og þurrum stað í frosti í
18 mánuði við -18°c.

Uppskrift að fiskur og franskar (e. Fish & Chips)

Best er að elda þorsk í tempura í ofni.
Fiskurinn er settur frosinn inn í 200° heitan ofn í 15-20 mínútur.
Til að fá enn stökkari hjúp er gott að setja ofninn á blástur. 


Við mælum með að elda franskarnar samhliða fisknum. Bara skella þeim í ofnskúffu fyrir neðan fiskinn og láta ofninn sjá um rest. 

Órjúfanlegur partur af hefðbundum Fish & Chips er svo auðvitað Fisherman  tartarsósa sem fullkomnar máltíðina ásamt sítrónu og grænum baunum, ef menn vilja bera fiskinn fram á breska vísu. 

Search