Skilmálar vefverslunar Fisherman
Samningurinn á milli kaupanda og Fisherman.is tekur gildi þegar Fisherman.is hefur staðfest pöntun þína og greiðslu með tölvupósti. Fisherman áskilur sér þó rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.
Allar greiðslur í vefverslun eru greiddar með greiðslukortum frá Visa eða Eurocard / Mastercard. Öll verð í netversluninni eru með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK. Þegar verslað er skráir þú inn númer og gildistíma greiðslukortsins. Fjárhæðin kemur fram í vefverslun og gjaldfærist þann dag sem kaupin fara fram. Greiðslan fer öll fram á öruggu greiðslusvæði hjá Valitor þar sem öllum öryggiskröfum er fullnægt. Sjá nánar á valitor.is
Allar vörur eru sendar með Flytjanda og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Flytjanda um afhendingu vörunnar. Sjá nánar á
www.flytjandi.is Allar vörur eru þó afgreiddar innan fimm vinnudaga hvert á land sem er. Erlendar sendingar eru sendar í samráði við kaupendur. Haft verður samband við þá sem panta erlendis frá.
Hægt er að skila öllum vöru gegn framvísun greiðslustaðfestingu og fær viðkomandi inneignarnótu hjá Fisherman ehf á móti vöruskilum. Þetta gildir ef varan er upprunalegum umbúðum og er söluhæf. Sendingarkostnaður sem verður til við skil á vöru er greiddur af kaupanda. Fisherman ehf tekur til baka gallaða vöru og skiptir henni út með nýrri vöru. Almenn lög um netverslanir gilda ef kaupandi og seljandi ná ekki í vinsemd að leysa úr ágreiningi um vörur frá fisherman.is Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum. Ef viðskiptavinir eru með kvörtun eða ábendingu þá óskum við sérstaklega eftir því að heyra um það sem við getum gert betur.
Sérleyfishafi vörumerkis:
Bræðraverk ehf
Freyjugata 1
430 Suðureyri Iceland
Sími: 450 9000
Tölvupóstur:
vefverslun@fisherman.is
Vsk númer. 65631
Kennitala: 580399-2909