Íslenska | 24. maí 2013 Íslenska English
Gisting

Fisherman er ferðaþjónn á Suðureyri sem hefur úrval af þjónustu og gistingu fyrir þig og þína. Hvort það er hótelherbergi, gistiheimili, tjaldsvæði, svefnpokagisting eða sumarhús. Við höfum þetta allt í boði og því spurning hvað hentar þér til að gera sumarfríið þitt ánægjulegt. Tengsl ferðaþjónustu og atvinnulífs í litlu vistvænu sjávarþorpi hefur notið vinsælda meðal okkar gesta. Hægt er að heimsækja þorskinn í lóninu, skella sér á sjóinn sem háseti á línubát, fara í stutta sjóstangveiðiferð, heimsækja fiskvinnsluna á staðnum eða fara í matarferð með leiðsögn um vistvænt sjávarþorp. Við erum stolt af því að vera fiskimenn í sjávarþorpinu Suðureyri og okkur langar að hjálpa þér að upplifa Sjávarþorpið Suðureyri. Skoðaðu úrvalið af gistingu og afþreyingu hér. 
Lesa meira

Bóka gistingu Bóka gistingu
Veitingar

Það er svo merkilegt að Suðureyri er vistvænsta sjávarþorp á Íslandi, það er okkar sérstaða. Íbúar á Suðureyri eru mjög stoltir af því að búa og starfa við framleiðslu á hágæða vistvænum sjávarafurðum sem sendar eru daglega ferskar beint inn í verslanir um víða veröld. Á veitingahúsinu Talisman hefur lengi verið lögð alúð í að bjóða gestum með stolti þessar fyrsta flokks framleiðsluafurðir Íbúana, því við erum öll fiskimenn í sjávarþorpinu Suðureyri. Það er okkar menning sem við viljum bjóða þér að upplifa.

 Lesa meira

 

Kaffihúsið Kaupfélag Súgfirðinga opnar 31.maí og þar verður boðið upp á kafihúsamatseðil ásamt úrvalskaffi frá Kaffitár. 

 

Við bjóðum þrjá mismunandi valkosti í veitingum. Skyndibita í söluskála, léttar veitingar á kaffihúsi og hágæða framleiðslu heimamanna á sjávarréttaveitingahúsi. Verið velkomin að upplifa sjávarþorp í mat og drykk.

Bóka borð Bóka borð
Verslun

Á vef fisherman.is er rekin fiskbúð með fiskafurðir sem framleiddar eru á Suðureyri. Pöntunarferlið er einfalt, öruggt og fljótlegt. Fisherman sendir fiskinn á afgreiðslustaði Flytjanda um land allt og er flutningskostnaður fyrir sendingar 10 kg og yfir innifalinn í verðinu. Tvær greiðsluleiðir eru í boði: 1) með greiðslukorti 2) með því að senda pöntun á vefverslun@fisherman.is og millifæra inná reikning. Lesa meira

 

Fisherman rekur einnig dagvöruverslun og umboð fyrir N1 á Suðureyri. Í söluskálanum er að finna dagvörur, léttar veitingar, grillmat og smávegis bremsuvökva og fleira fyrir bílinn líka. þann 31.maí opnar Fisherman svo Kaupfélag Súgfirðinga þar sem gjafavara aðrar tækifæris vörur verða í boði í bland við flott kaffihús.

 

Vetraropnun Söluskáli 12:00 - 20:00 alla daga

Sumaropnun Söluskáli 10:00 - 21:00 alla daga

Sumaropnun Kaupfélag 09:00 - 23:00 alla daga

Panta fisk í vefverslun Panta fisk í vefverslun

Hönnun: Styx Iceland