Íslenska | 24. maí 2013 Íslenska English

Fiskiskóli Fisherman

Undanfarin ár hafa gestir komið með fisk sem þeir hafa veitt sjálfir eða fengið hjá sjómanni á höfninni og beðið okkur um að elda fiskinn fyrir sig. Það höfum við gert í eldhúsinu á Talisman en núna er verið að innrétta sér eldhús fyrir þessa þjónustu sem hefur fengið nafnið Fiskiskólinn Fisherman eða Fisherman Cooking School. Þar geta gestir upplifað gæðin í ferskum fisk, fengið að læra allt um matreiðslu á fisk og síðan borðað fiskinn sem þau elda með aðstoð heimamanna. 

 

Verkefnið fékk markaðsstuðning frá Vaxtasamningi Vestfjarða og Atvest sem mun gefa Fisherman kost á því að kynna þessa nýju þjónustu með enn meiri krafti en annars hefði verið hægt. Hægt er að lesa meira um Fiskiskólann hér.

Hönnun: Styx Iceland