Markaðsstefna
Mörkun vörumerkis er eins og stórt púsl. Margir litlir þættir mynda eina skemmtilega mynd.
Hér eru upplýsingar um vörumerkið Fisherman fyrir þá sem eru að nota það hverju sinni og öðrum áhugasömum til fróðleiks. Vörumerkið Fisherman er sameiginlegt einkenni þeirra sem kynna vörur og þjónustu sem er í boði á Suðureyri.
Frumvinna við skilgreiningu vörumerkis leiddi það í ljós að væntingar þeirra sem voru á leið til Suðureyrar voru ekki miklar eða 3,2 af 5 mögulegum stigum. Eftir dvöl mældist ánægja gesta 4,9 af 5 mögulegum stigum. Erfitt er að selja þjónustu þegar væntingar eru ekki miklar. Gerð var ný rannsókn um hvað var valdur þess að ánægja var mun meiri en væntingar. Þegar niðurstaðan var ljós var gerð stefnumótun sem byggir á þeim þáttum sem örsaka þennan mikla mun á milli væntinga og raun ánægju viðskiptavina.
Skilgreindur var áttaviti um hlutverk vörumerkis sem á að vekja áhuga á Suðureyri sem áfangastað. Áttavitinn er stilltur af eftir markaðsrannsóknum meðal okkar viðskiptavina og ítarleg stefnumótun var unnin um áfangastaðinn Suðureyri. Áttavitinn er tæki sem allt markaðsefni og stefnumótun byggir á til framtíðar og byggir hugmyndafræðin á “destination branding” sem hefur verið að ryðja sér til rúms meðal samfélaga sem vilja aðgreina sig frá öðrum. Eftirfarandi átta þættir hafa verið skilgreindir í áttavita Fisherman. Athugið að hér er eingöngu um úrdrátt að ræða.
Áttavitinn
1. Nafn og staðsetning
Nafnið Fisherman er dregið af hinum síkáta Bobby Fisherman sem stendur stoltur vörð um að kynna sjávarþorpið Suðureyri sem spennandi áfangastað ferðamanna.
2. Framtíðarsýn
Fishing village resort þar sem íbúar og ferðamenn eiga góða samleið.
3. Markhópar
Hugsun, kjarni og könnuðir
4. Loforð
Fisherman lofar viðskiptavinum gildum sínum með beggja hag að leiðarljósi.
5. Gildi
Upplifun, fræðsla og þátttaka.
6. Markmið
Að skapa áhugasöm og arbær viðskipti.
7. Þjónusta
Gisting, veitingar, afþreying og verslun.
8. Persónuleiki vörumerkis
Glaðbeittur skemmtilegur sjóari sem tekur viðskiptavinum opnum örmum.
Hönnunarstaðall
Á bak við áttavitann er síðan hönnunarstaðall þar sem litir, leturgerðir, rétt skilaboð og valdar myndir koma skilaboðum áttavitans á framfæri.
Litir og letur eru notaðir í allt sem tengist merkinu til að samræma skilaboð. Útlit Fisherman byggir á þremur vandlega völdum litum.
Appelsínugulur (Pantone Orange 021): vísar til sjómanna. Þetta er litur sjóklæða og sá litur sem einna mest tengist fiskveiðum og öryggi sjómanna. Í litafræði er liturinn talinn boða hamingju, er hjartahlýr og árangursdrifinn. Besti vinur hans er blár.
Sæblár (Pantone 3155): Er litur hafsins. Einn af lykillitum og sá sem er einna mikilvægastur þegar unnið er að markaðssetningu á þáttum sem snúa að sjó. Blár er ferskur, kraftmikill og friðsæll litur.
Ljósbrúnn / beige (Pantone 7502): Þessi litur hefur það hlutverk að jafna hina litina og mynda jafnvægi í litapallettunni. Ólíkt hinum litunum hefur hann enga vísun í starfsemi Fisherman. Ástæðan fyrir vali hans er einkum tvíþætt: Samspil hans við þá liti sem fyrir eru og fagurfræðilegt hlutverk.
Leturgerðir
Nafnið og upphrópanir – Fonoexpanded
Fishing village, þula - Lucida Console
Almennt letur – Verdana
Lífstílshópar
Okkar gestir eins og aðrir hafa mismunandi lífsviðhorf og því meta þeir lífið og gæði þjónustu misjafnt eftir því í hvað lífstílshóp þeir tilheyra. Í rannsóknum sem gerðar hafa verið á Suðureyri út frá lífstílshópalíkaninu “Seven4Cs Groups” kemur skýrt fram að þrír lífstílshópar af sjö eru að meta þjónustugæði á Suðureyri mun meira en hinir fjórir. Þessir hópar eru kallaðir kjarni, hugsuðir og könnuðir. Þjónustuframboð og gerð markaðsefnis byggir því frekar á því að höfða til fólks innan þessa þriggja hópa.
Kjarni
Aðhyllist öryggi og grundvallargildi fjölskyldunnar með tryggum böndum. Leitar ráða hjá vinum um hvert hann á að fara í næsta ferðlag.
Aðhyllist öryggi og grundvallargildi fjölskyldunnar með tryggum böndum. Leitar ráða hjá vinum um hvert hann á að fara í næsta ferðlag.
Könnuðir
Ýtir við viðteknum venjum, er forvitinn og ryður brautina fyrir nýjungar.
Ýtir við viðteknum venjum, er forvitinn og ryður brautina fyrir nýjungar.
Hugsuðir
Er sjálfum sér nægur og einkennist af sjálfsskoðun,umhverfisvernd, sjálfsmótun og heiðarleika.
Er sjálfum sér nægur og einkennist af sjálfsskoðun,umhverfisvernd, sjálfsmótun og heiðarleika.
Aukamerki
Mörg aukamerki tilheyra vörumerkinu Fisherman en þau eru notuð sem íkveikju efni og til að skreyta kynningar á skemmtilegan hátt. Aukamerki standa aldrei ein og sér nema þar sem þeim er ætlað að vekja upp spurningar og umræðu.
Fyrir þá sem vilja kynnast vörumerkinu Fisherman og formlegri vinnu við uppbyggingu vörumerkis, tengingu þess við uppbyggingu áfangastaðar og fleira er bent á að hafa samband við Elías Guðmundsson, elias@fisherman.is eða í síma 450 9000.
RSS Feed
Facebook









