Íslenska | 22. maí 2013 Íslenska English

Hvað er Fisherman

Fisherman er stoltur ferðaþjónn á Suðureyri sem er lítið og skemmtilegt sjávarþorp á Vestfjörðum. Fisherman tekur á móti gestum og býður þeim að taka þátt, upplifa og kynnast atvinnulífi og menningu á Suðureyri sem er talið vera vistvænsta sjávarþorp á Íslandi. Fjölbreytt úrval af vörum og þjónustu er í boði sem hægt er að skoða á forsíðu. 
Stutta sagan okkar
Árið 2000 keyptum við hjónin lítið hús á Suðureyri sem til stóð að rífa. Við endurbyggðum húsið sem lítið gistiheimili og um vorið 2001 tókum við á móti fyrsta gestinum. Í gegnum árin höfum við stækkað reksturinn jafnt og þétt með því að fjölga herbergjum, breyta gistiheimilinu í hótel, opna veitingahúsið Talisman og síðan bættum við litlum söluskála við reksturinn. í maí 2013 bætist svo við kaffihúsið Kaupfélag Súgfirðinga ásamt fiskiskóla sem er partur af matarferðum sem er sérsniðin fyrir gesti sem vilja upplifa vistvænt sjávarþorp á rúmu klukkutíma. Einnig eigum við samstarfi við Bræðraverk ehf sem rekur vefverslun á heimasíðu okkar fisherman.is þar sem seldur er fiskur frá Suðureyri.
Fyrirtækið var áður partur af fyrirtækinu Hvíldarklett sem við hjónin stofnuðum árið 2000 en í júlí 2009 var fyrirtækinu skiptu upp á milli okkar og þeirra sem höfðu fjárfest með okkur í uppbyggingu á sjóstangveiði. Hvíldarklettur heitir núna Iceland Pro Fishing og sérhæfir sig í dag í sjóstangveiðiferðum. Okkar von er að þessi síða nýtist okkar góðu viðskiptavinum að kynnast okkur betur og að við fáum tækifæri til að koma okkar þjónustu og nýjungum á framfæri.

 

Elías og Jóhanna

 

Hér má sjá markaðsstefnu Fisherman sjá hér. 

Hér má sjá umhverfisstefnu Fisherman sjá hér.

 

Fisherman ehf
Skipagata 3
430 Suðureyri - Ísafjaðrarbær
Sími: 450 9000
Tölvupóstur: fisherman@fisherman.is
Vsk númer 88543
Kennitala: 611105-0960
IBAN: IS41 1114 2600 0645 6111 0509 60
SWIFT: SISLISRE

 

Framkvæmdastjóri 
Elías Guðmundsson
Sími: 450 9000
GSM: 862 6200
elias@fisherman.is

 

Rekstraraðili Fisherman vefverslun

Bræðraverk ehf

Hildur Sólveig Elvarsdóttir

Sími: 450 9000

vefverslun@fisherman.is

Hönnun: Styx Iceland