Íslenska | 18. maí 2013 Íslenska English

Gisting

Fisherman er ferðaþjónn á Suðureyri sem hefur úrval af þjónustu og gistingu fyrir þig og þína. Hvort það er hótelherbergi, gistiheimili, íbúðagisting, tjaldsvæði, svefnpokagisting eða sumarhús. Við höfum þetta allt í boði og því spurning hvað hentar þér til að gera sumarfríið þitt ánægjulegt. Nýlega var Suðureyri valinn besti bær á Íslandi til að heimsækja af bandarísku ferðahandbókinni Frommers. Tengsl ferðaþjónustu og atvinnulífs í litlu vistvænu sjávarþorpi hefur notið vinsælda meðal gesta okkar. Hægt er að skella sér á sjóinn sem háseti á línubát, fara í stutta sjóstangveiðiferð, heimsækja fiskvinnsluna á staðnum eða fara í þorpsgöngu með leiðsögn um vistvænt sjávarþorp. Við erum stolt af því að vera fiskimenn í sjávarþorpinu Suðureyri og okkur langar að hjálpa þér að upplifa Sjávarþorpið Suðureyri.

 

Göngufæri er í alla þjónustu og afþreyingu. Sundlaugin á Suðureyri er útisundlaug með jarðvarmavatni og ein af þeim allra vinsælustu á Vestfjörðum. Þar eru heitir pottar, vaðlaug fyrir börn. Göngutúr á höfnina þegar smábátarnir landa afla dagsins er alltaf vinsæl eða gönguferð í Staðardal til að sjá kvöldsólina og smábátana sigla heim með afla dagsins. Berjatínsla er vinsæl þegar líður á sumarið. Góðar merktar gönguleiðir eru á Klofningsheiði milli Suðureyrar og Flateyrar og einni á milli Selárdals í Súgandafirði yfir Grárófu til Bolungarvíkur. Hér er tengill á gönguleiðakortið okkar.

 

Verðlisti hótelgisting með morgunmat 
Tveggja manna herbergi með eigin baðherbergi              kr.21.900-
Einstaklingsherbergi með eigin baðherbergi                    kr. 17.500-
 
Verðlisti gistiheimili með morgunmat
Tveggja manna herbergi með sameiginlegu baðherbergi kr. 16.500-
Einstaklingsherbergi með sameiginlegu baðherbergi         kr. 12.500-
 
Verðlisti hostel
Svefnpokagisting pr. gest,                                              kr. 4000-
 
Verðlisti sumarhús
Sumarhús fyrir fjóra vikuleiga                                       kr. 59.900-
Sumarhús fyrir fjóra helgarleiga                                    kr. 49.900-
Sumarhús fyrir fjóra dagleiga                                        kr. 29.900-
 
Verðlisti tjaldsvæði
Gjald fyrir húsbíla, tjöld og fellihýsi ein nótt                   kr. 4.500-
Tengigjald við rafmagn                                                kr. 1.000-
                                 
Afþreying sem hægt er að bóka með gistingu
Matarferð með leiðsögn um vistvænt sjávarþorp             kr. 3.900- 
Heimsókn í Fiskvinnsluna Íslandssögu                              kr. 1.500-
Sjóstangveiði í tvo tíma með leiðsögumanni                      kr. 7.900-
Háseti á línubát, gisting og fullt fæði í sólarhring                kr. 49.900- 

 

GPS hnit Fisherman Hótel Suðureyri er 66° 7,820'N, 23° 31,695'W

Hönnun: Styx Iceland