Íslenska | 22. maí 2013 Íslenska English

Veitingar

 

Skilaboð frá eldhúsinu -Veitingahúsið TALISMAN-

Það er svo merkilegt að Suðureyri er vistvænsta sjávarþorp á Íslandi, það er okkar sérstaða. Íbúar á Suðureyri eru mjög stoltir af því að búa og starfa við framleiðslu á hágæða vistvænum sjávarafurðum sem sendar eru daglega ferskar beint inn í verslanir um víða veröld. Á veitingahúsinu Talisman hefur lengi verið lögð alúð í að bjóða gestum með stolti þessar fyrsta flokks framleiðsluafurðir Íbúana, því við erum öll fiskimenn í sjávarþorpinu Suðureyri. Það er okkar menning sem við viljum bjóða þér að upplifa.

 

Hönnun

Í hönnun á innviðum veitingahússins má meðal annars nefna að matarstell var handunnið í þorpinu af leirkerasmiðnum Ólöfu Oddsóttur, þorsklampar eru verk Daggar Guðmundsdóttur, málverk af norðurljósum eru verk Jóns Sveinssonar og matseðlar eru innbundnir í hlýraroð.

 

Nafnið TALISMAN

Nafnið TALISMAN kemur frá skipinu Talisman EA sem fórst rétt fyrir utan Suðureyri 24. mars 1922. Sjóslys hafa í gegnum aldirnar verið tíð við Íslandsstrendur en saga þeirra 4 manna af 16 sem komust lífs af í slysinu á alltaf eftir að vera stórmerkileg hetjusaga um þrekraunir sjómanna. Eftir langan óveðursbarning á hafi úti strandaði skipið og brotnaði á strandstað svo skipbrotsmönnum skolaði í land.  Þeir sem lifðu strandið af skriðu í óveðri, yfir snjó og klakalagt fjörugrjótið út fjörð og inn til Flateyrar.  

 

Frá 1. maí til 15. sept opnar veitingahúsið kl: 08:00 með morgunverðarhlaðborði, síðan eru léttar veitingar allan daginn fram til kl: 18:00 en þá er opið fyrir neðangreindan matseðil vel fram eftir kvöldi.   


MATSEÐILL 
 

 

Forréttir

 

 

1. Reykýsusúpa     

kr 1.590-

Rjómuð súpa með reyktri ýsu. Borin fram með hveitikökum og smjöri.

 

2. Saltfisk þynnur  

kr 1.390-

Saltfisk carpaccio með ristuðum furuhnetum og gúrkusalati.

 

3. Laxinn                  

kr. 1.690-

Heimagrafinn villtur lax með ristuðu brauði og dillsósu.

 

4. Salatið      

kr. 1.490-     

Salatblanda að hætti Talisman.

 

Aðalréttir

 

5. Aðalsmerki sjávarþorpsins    

kr. 2.900-

Pönnusteiktur steinbítur í rjóma og koníakssósu borið fram með kartöflum og fersku salati.

 

6. Hnakkinn             

Kr. 3.200-

Pönnusteiktur þorskhnakki með Aioli sósu, grænmeti og kartöflum.

 

7. Plokkarinn          

kr. 1.900-

Hinn eini sanni plokkfiskur með heimabökuðu rúgbrauði og smjöri.

 

8. Lambaleggir

kr.3.900-

Hægeldaður lambaleggur með kartöflum, grænmeti og soðsósu.

 

9. Skipstjórasúpan

kr. 1.900-

Sjávarréttasúpa á rækjubeði, með hveitikökum og smjöri. 

 

Eftirréttir

 

 

10. Rabbabara tríó

kr. 1.390.-

Vanillu rabbabarakrem með ávaxtamauki og rabbabaraís.

 

11. Skyr           

kr. 1.390.-

Skyr með bláberjum og heitri bláberja muffins.

 

12. Súkkulaðikakan 

kr. 1.590-

Þykk, mjúk og heit súkkulaði kaka, borin fram með rjómaís og rósmarínsósu.

 

 

 

 

Fyrir börnin

 

13. Krakkafiskur                  

kr. 890.-

Soðin fiskur með kartöflum og tómatsósu.

  

14. Furðulega samlokan     

kr. 890.-

Grilluð og útskorin samloka með skinku og ost.

 

Hönnun: Styx Iceland