Íslenska | 5. febrúar 2012 Íslenska English
Gisting

Fisherman er ferðaþjónn á Suðureyri sem hefur úrval af þjónustu og gistingu fyrir þig og þína. Hvort það er hótelherbergi, gistiheimili, íbúðagisting, tjaldsvæði, svefnpokagisting eða sumarhús. Við höfum þetta allt í boði og því spurning hvað hentar þér til að gera sumarfríið þitt ánægjulegt. Nýlega var Suðureyri valinn besti bær á Íslandi til að heimsækja af bandarísku ferðahandbókinni Frommers. Tengsl ferðaþjónustu og atvinnulífs í litlu vistvænu sjávarþorpi hefur notið vinsælda meðal gesta okkar. Hægt er að skella sér á sjóinn sem háseti á línubát, fara í stutta sjóstangveiðiferð, heimsækja fiskvinnsluna á staðnum eða fara í þorpsgöngu með leiðsögn um vistvænt sjávarþorp. Við erum stolt af því að vera fiskimenn í sjávarþorpinu Suðureyri og okkur langar að hjálpa þér að upplifa Sjávarþorpið Suðureyri. Skoðaðu úrvalið af gistingu og afþreyingu hér. 
Lesa meira

Bóka gistingu Bóka gistingu
Veitingar

Veitingastaðurinn Talisman sérhæfir sig í ferskum fisk sem framleiddur er á Suðureyri, local food. Á Talisman er því kjörið tækifæri til að kynnast virkilegum ferskleika og matreiðslu að hætti heimamanna frá fyrstu hendi. Gistingin og veitingahúsið tengjast fiski töluvert því stolt Vestfirðinga er stórbrotin náttúra, gjöful fiskimið og aldagömul matvælahefð tengd fiski. Hönnun á innviðum veitingahússins er metnaðarfull og má meðal annars nefna að matarstell var handunnið í þorpinu af leirkerasmiðnum Ólöfu Oddsóttur, þorsklampar eru verk Daggar Guðmundsdóttur og matseðlar eru innbundnir í hlýraroð. Hönnunin á veitingarhúsin skapar skemmtilega stemmingu til móts við frábæran matseðil. Lesa meira

Bóka borð Bóka borð
Verslun

Á vef fisherman.is er rekin fiskbúð með fiskafurðir sem framleiddar eru á Suðureyri. Pöntunarferlið er einfalt, öruggt og fljótlegt. Fisherman sendir gæða fisk á afgreiðslustaði Flytjanda um land allt og er flutningskostnaður innifalinn. Tvær greiðsluleiðir eru í boði: 1) með greiðslukorti 2) með því að senda pöntun á vefverslun@fisherman.is og millifæra inná reikning. Lesa meira

 

Fisherman rekur einnig dagvöruverslun og umboð fyrir N1 á Suðureyri. Í söluskálanum er að finna allar helstu dagvörur, léttar veitingar, grillmat og smávegis bremsuvökva og fleira fyrir bílinn líka. Smá kaupfélagsfílingur enn í þessu !

 

Vetraropnun 11:00 - 20:00 alla daga

Sumaropnun 10:00 - 22:00 alla daga

Panta fisk í vefverslun Panta fisk í vefverslun

Hönnun: Styx Iceland